Dagskrá haustþings Veðurfræðifélagsins

Haustþing Veðurfræðifélagsins verður haldið í Orkugarði, Grensásvegi 9, miðvikudaginn 20. október. Þingið er ókeypis og opið öllum er áhuga hafa á veðri og veðurfari. Að þessu sinni fjallar stór hluti þingsins um veður og eldgos.

    Dagskrá

* 13:00 – Inngangur
* 13:05 – Theodór F. Hervarsson: Eldgosavöktun: Hlutverk Veðurstofu Íslands
* 13:20 – Ingibjörg Jónsdóttir: Fjarkönnun á eldgosum og tengdum fyrirbærum
* 13:35 – Haraldur Ólafsson: Öskumælingar yfir Íslandi og SGN
* 13:50 – Þórður Arason: Hvað veldur eldingum í eldgosum?
* 14:05 – Halldór Björnsson: Þættir sem hafa áhrif á hæð eldgosamakkar

* 14:20 – Kaffihlé

* 14:50 – Guðrún Nína Petersen: Með gosmökk á radarnum
* 15:05 – Kristján Jónasson: Vindhraði og vindorka á Íslandi
* 15:20 – Emil H. Valgeirsson: Veðurdagbók fyrir Reykjavík
* 15:35 – Ólafur Rögnvaldsson: SARWeather
* 15:50 – Kristján Jónasson: Ný langtímaspá fyrir öldina

* 16:05 – Þingi slitið

Stutt ágrip hluta erindanna má finna hér.

Ljósmynd af eldingu 17. apríl 2010, séð frá Kiðjabergi í Grímsnesi (fjarlægð 72 km).  Myndin er tekin á 30 sek kl. 04:47:09. Ljósm. Þórður Arason.

Ljósmynd af eldingu 17. apríl 2010, séð frá Kiðjabergi í Grímsnesi (fjarlægð 72 km). Myndin er tekin á 30 sek kl. 04:47:09. Ljósm. Þórður Arason.