Sumarþing Veðurfræðifélagsins

Sumarþing Veðurfræðifélagsins verður haldið fimmtudaginn 13. júní 2013. Þingið verður sett kl. 14 í matsal Veðurstofu Íslands að Bústaðavegi 7.

Hér með er auglýst eftir óskum um erindi á þinginu. Erindin eru að jafnaði um 12 mínútur auk 2 mínútna til spurninga. Senda þarf titil og stuttan útdrátt á „vedurfraedifelagid hjá gmail.com“.

Veðurfræðifélagið og þing þess eru opin öllum sem hafa áhuga á veðri og veðurfari.