Dagskrá þorraþings

Þorraþing Veðurfræðifélagsins verður haldið á sprengidag, 12. febrúar, að Bústaðavegi 7. Þingið hefst kl. 13:30 sem er 30 mínútum síðar en áður var auglýst. Í framhaldi af þinginu heldur Veðurfræðifélagið aðalfund sinn.

* 13:30 – Inngangur
* 13:35 – Páll Bergþórsson: Hitasveiflur vegna hafíss
* 14:00 – Ingibjörg Jónsdóttir: Hafísvöktun – er líf eftir ENVISAT?
* 14:15 – Einar Sveinbjörnsson: Norðanáhlaupið 10. til 11 september og líkindi við snjóflóðaveðrið á Vestfjörðum 25. október 1995
* 14:30 – Trausti Jónsson: Áttvísi ofviðra
* 14:45 – Hróbjartur Þorsteinsson: Snjóhulugreining með MODIS

Stutt kaffihlé og aðalfundur

Stuttir útdrættir nokkurra erinda eru hér.