Þorraþing og aðalfundur

Þorraþing Veðurfræðifélagsins verður haldið á sprengidag, 12. febrúar 2013. Þingið hefst kl. 13 og í framhaldi af því heldur Veðurfræðifélagið aðalfund sinn. Upplýsingar um staðsetningu berast er nær dregur.

Hér með er auglýst eftir óskum um erindi á þorraþinginu. Að þessu sinni er óskað sérstaklega eftir erindum sem falla undir flokkinn “Aftök í veðri” en sem fyrr eru öll erindi tengd veðri og/eða veðurfari velkomin. Erindin verða að jafnaði um 12 mínútur auk 2 mínútna til spurninga. Senda þarf titil og stuttan útdrátt á „vedurfraedifelagid hjá gmail.com“, en jafnframt er óskað eftir áhugaverðri mynd úr hverju erindi fyrir auglýsingu þingsins og vef félagsins.

Veðurfræðifélagið og þing þess eru opin öllum sem hafa áhuga á veðri og veðurfari.