Haustþing Veðurfræðifélagsins

Veðurfræðifélagið auglýsir haustþing sitt sem haldið verður fimmtudaginn 11. október 2012. Fundur verður settur kl. 13 í Forgarði á Veðurstofu Íslands að Bústaðavegi 7 og slitið kl. 16. Þingið og Veðurfræðifélagið eru opin öllum sem hafa áhuga á veðri og veðurfari.

Hér með er auglýst eftir óskum um erindi á haustþinginu er tengjast veðri og/eða veðurfari. Erindin verða að jafnaði um 12 mínútur auk 2 mínútna til spurninga. Senda þarf titil og stuttan útdrátt á „vedurfraedifelagid hjá gmail.com“. Jafnframt væri skemmtilegt að fá eina áhugaverða mynd úr hverju erindi fyrir auglýsingu vegna þingsins.