Dagskrá sumarþings

Veðurfræðifélagið heldur sumarþing sitt næstkomandi þriðjudag 29. maí 2012. Fundur verður settur kl. 13 í Forgarði á Veðurstofu Íslands að Bústaðavegi 7 og slitið kl. 15:30. Þingið og Veðurfræðifélagið eru opin öllum sem hafa áhuga á veðri og veðurfari. Að þessu sinni eru erindin 6 talsins og stutt ágrip erindanna má finna hér.

Dagskrá þingsins:
——————-
* 13:00 – Inngangur
* 13:05 – Trausti Jónsson: Meðalhiti og íslenska misseristímatalið
* 13:25 – Skúli Þórðarson: Gildi veðurradars fyrir stjórnun vetrarþjónustu Vegagerðarinnar
* 13:45 – Hróbjartur Þorsteinsson: Samvirkni dreifilíkans og öskuathugana

Kaffihlé

* 14:30 – Halldór Björnsson: Sjávarstöðubreytingar
* 14:50 – Hálfdán Ágústson: Íslandsveður framtíðar reiknað í þéttriðnum möskvum
* 15:10 – Trausti Jónsson: Hlýju áratugirnir 1931 til 1940 og 2001 til 2010 – hver er munurinn?