Síðustu forvöð að skrá erindi á sumarþing

Nú eru síðustu forvöð að senda óskir um erindi á sumarþingi Veðurfræðifélagsins sem haldið verður þriðjudaginn 29. maí í næstu viku. Erindin þurfa að tengjast veðri og/eða veðurfari, og eru að jafnaði um 12 mínútur auk 2 mínútna til spurninga. Senda þarf titil og stuttan útdrátt á „vedurfraedifelagid hjá gmail.com“.

Athugið að þingið verður að þessu sinni haldið kl. 13-16 í Forgarði á Veðurstofu Íslands að Bústaðavegi 7.