Sumarþing Veðurfræðifélagsins

Veðurfræðifélagið auglýsir sumarþing sitt sem haldið verður mánudaginn 6. júní 2011. Fundur verður settur kl. 13 í Víðgelmi í Orkugarði að Grensásvegi 9 og slitið kl. 16. Þingið og Veðurfræðifélagið eru opin öllum sem hafa áhuga á veðri og veðurfari.

Hér með er auglýst eftir óskum um erindi á sumarþingið er tengjast veðri og/eða veðurfari. Erindin verða að jafnaði um 12 mínútur auk 2 mínútna til spurninga. Senda þarf titil og stuttan útdrátt á „vedurfraedifelagid hjá gmail.com“.