Dagskrá Þorraþings Veðurfræðifélagsins

Þorraþing Veðurfræðifélagsins verður haldið í Orkugarði, Grensásvegi 9, þriðjudaginn 22. febrúar. Þingið verður sett kl. 13:30 en athugið að það er 30 mínútum síðar en áður var auglýst. Aðgangur að þinginu er ókeypis og þingið er opið öllum er áhuga hafa á veðri og veðurfari.

    Dagskrá

* 13:30 – Inngangur
* 13:35 – Haraldur Ólafsson: Hafgolan, brekkuvindurinn og hæðarvindurinn í upphæðum á sumrin
* 13:50 – Elín Björk Jónsdóttir: Að auka endurkast skýja
* 14:05 – Kristján Jónasson: Líkön af vindhraða mældum í mastrinu við Bústaðaveg 9 í Reykjavík
* 14:05 – Guðrún Nína Petersen: Grænlenskar vindrastir í ERA-Interrim
* 14:20 – Kristín Hermannsdóttir: Veðurfréttir í sjónvarpi – fortíð, nútíð og framtíð

* 14:35 – Kaffihlé

* 15:00 – Einar Sveinbjörnsson: Kuldaskil og snöggar hitabreytingar
* 15:15 – Þóranna Pálsdóttir: Sjálfvirkar úrkomumælingar og úrvinnsla þeirra
* 15:30 – Sibylle von Löwis: Öskufoksmælingar í Drangshlíðardal undir Eyjafjöllum
* 15:45 – Birgir Hrafnkelsson: Leitni í hitastigi
* 16:00 – Þingi slitið

Stutt ágrip hluta erindanna má finna hér.

Að loknu Þorraþingi heldur Veðurfræðifélagið aðalfund sinn og hefst hann kl. 16:15 eftir stutt kaffihlé.

Öskufok undir Eyjafjöllum. Mynd: Sibylle von Löwis

Öskufok undir Eyjafjöllum. Mynd: Magðalena Jónsdóttir