Góuþing og aðalfundur

Veðurfræðifélagið heldur góuþing sitt og aðalfund fimmtudaginn 22. febrúar 2018. Þingið verður haldið í matsal Veðurstofu Íslands að Bústaðavegi 7 og að þingi loknu verður gengið til hefðbundinna aðalfundarstarfa.

Hér með er auglýst eftir óskum um erindi tengd veðri og/eða veðurfari. Erindin verða að jafnaði um 12 mínútur auk 2 mínútna til spurninga. Senda þarf titil og stuttan útdrátt á: „vedurfraedifelagid@gmail.com“.

Veðurfræðifélagið og þing þess eru opin öllum sem áhuga hafa á veðri og veðurfari.