Lumar þú á erindi á sumarþing Veðurfræðifélagsins?

Enn er rúm fyrir allnokkur erindi á áður auglýstu sumarþingi Veðurfræðifélagsins sem haldið verður mánudaginn 6. júní 2011. Þeir sem hafa hug á að halda erindi á þinginu eru beðnir um að senda sem fyrst titil og stuttan útdrátt á: „vedurfraedifelagid hjá gmail.com“. Erindin verða að jafnaði um 12 mínútur auk 2 mínútna til spurninga.


Sumarþing Veðurfræðifélagsins

Veðurfræðifélagið auglýsir sumarþing sitt sem haldið verður mánudaginn 6. júní 2011. Fundur verður settur kl. 13 í Víðgelmi í Orkugarði að Grensásvegi 9 og slitið kl. 16. Þingið og Veðurfræðifélagið eru opin öllum sem hafa áhuga á veðri og veðurfari. Hér með er auglýst eftir óskum um erindi á sumarþingið er tengjast veðri og/eða veðurfari. […]