Dagskrá sumarþings

Sumarþing Veðurfræðifélagsins verður haldið næstkomandi fimmtudag, 13. júní. Þingið verður sett kl. 14 í matsal Veðurstofu Íslands að Bústaðavegi 7. Veðurfræðifélagið og þing þess eru opin öllum sem hafa áhuga á veðri og veðurfari.

* 14:00 – Þing sett
* 14:05 – Elín Björk Jónasdóttir: Skýstrókar í Oklahóma.
* 14:20 – Atli Norðmann Sigurðarson: Bayesískt tölfræðilíkan fyrir mánaðarlega úrkomu byggt á úrkomumælingum og úttaki úr veðurfræðilíkani.
* 14:35 – Bolli Pálmason: Kynning á Harmonie veðurlíkani Veðurstofunnar.
* 14:50 – Þórður Arason: Notkun eldinga í gosmekki til að ákvarða staðsetningu eldgoss.

* 15:05 – Kaffihlé

* 15:30 – Óli Páll Geirsson: Modelling annual maximum 24 hour precipitation in Iceland using block sampling and SPDE models.
* 15:45 – Trausti Jónsson: Kvöldstöðvar – Hvað er það? Hverjar eru þær?
* 16:00 – Haraldur Ólafsson: Litið yfir mæliherferðir undanfarinna ára.

Ágrip erinda má finna: hér.