Aðalfundur Veðurfræðifélagsins 11. feb. 2010 -------------------------------------------- Mættir voru: Guðrún Nína Petersen (GNP), Hálfdán Ágústsson (HÁ), Theodór Freyr Hervarsson (TFH), Einar Sveinbjörnsson, Árni Sigurðsson, Sveinn Brynjólfsson, Kristín Hermannsdóttir, Þórður Arason, Ólafur Rögnvaldsson. GNP setur fundinn (líklega um kl. 1620) og leggur til að Einar Sveinbjörnsson stýri fundinum og að Hálfdán Ágústsson riti fundargjörð. Samþykkt af aðalfundi. GNP lýsir starfsemi félagsins á árinu: ----------- * Þingin voru 3, þorraþing, sumarþing og haustþing. * Mæting á þing hefur heldur aukist, eflaust vegna auglýsinganna en haustþing var m.a. auglýst hjá Einari Sv. og á loftslag.is. Flest þingin voru einnig auglýst á vef VÍ. * Rætt var um þemun sem hafa reynst vel. Þórður spurði hvort ekki væri hægt að hafa lengri fyrirvara (t.d. 2 mán.) með að gefa upp þemu næsta þings. Meðal annars svo menn gætu fundið til (gamalt) efni úr skúffunum og unnið frekar við það. * GNP sagði frá EMS þingi og að HÁ sótti aðalfundinn fyrir hönd VF. ÓR ætlaði með HÁ en fór ekki. * GNP sagði frá vefsíðunni en bað um að rætt yrði um hana síðar í dagskránni. * HÁ sagði frá sérhefti frá NMM 2008. Nokkrar greinar hafa verið sendar í heftið og þar af 1-2 þegar samþykktar. MAP hefur gengið illa að reka á eftir ritstjóra sínum og því hefur ritið tafist. Nú lítur út fyrir að þetta fari að ganga betur. Utan ein spurnig frá Þórði Arasyni voru engar sérstakar athugasemdir gerðar við starfsemina á liðnu ári. TFH fer yfir reikningana: ------------ * Einar Magnús Einarsson og Haraldur Ólafsson voru skoðunarmenn og samþykktu reikningana. * Félagið stendur mjög vel með töluverðan vaxtahagnað á árinu. Önnur innkoma var engin. * Tveimur reikningum var lokað enda tómir. * Kostnaður félagsins á árinu laut að heimasíðugerð, þ.e. hýsingu og veffangi, auk kaffibrauðs fyrir þingin. Einar Sv. spyr um þennan góða fjárhag félagsins. HÁ og GNP útskýra að hluti hans komi frá norræna þinginu 1998 í Reykjavík og restin frá góðu gengi á norræna þinginu 2008 í Reykjavík. Þar gekk mun betur að fá styrki og skera niður í kostnaði en búist var við. Ráðstefnugjöld voru greidd í norskum krónum og því hjálpaði lágt gengi krónu. Einar Sv. bendir jafnframt á að reikninga skuli gera upp frá 1. jan. til 1. jan. en ekki m.v. rekstrarárið. Honum var bent á að bæði uppgjörin voru til staðar. * Reikningarnir voru samþykktir á rekstrarári án frekari athugasemda. Kosning í stjórn: ----------- * Einar Sveinbjörnsson spyr hvort sitjandi stjórn hafi tillögur að nýrri stjórn. *TFH á eitt ári eftir í stjórn og því þarf ekki að kjósa um sæti hans. HÁ og GNP hafa setið í tvö ár en gefa aftur kost á sér. * GNP og HÁ eru kosin aftur í stjórn (til tveggja ára) með öllum greiddum atkvæðum. * Einar Magnús Einarsson og Haraldur Ólafsson er kosnir skoðunarmenn á ný. Önnur mál: --------- * Í ljós góðs fjárhags leggur Einar Sveinbjörnsson til að félagið greiði þinggjöld á norræna þinginu (NMM2010) fyrir félagsmenn sína. Þetta væri hvati til þess að fólk myndi sækja þingið, 150 evrur en 50 evrur fyrir stúdenta, en ekki svo stór biti fyrir félagið. * Málið er rætt og mörgum líst vel á, t.d. Kristínu Hermannsdóttur sem vill gjarnan fara á þingið. * GNP leggur til að ef þetta verði samþykkt þurfi viðkomandi að flytja erindi á norræna þinginu eða á næsta fræðaþingi Veðurfræðifélagsins þegar heim er komið. * Hálfdán bendir á að ekki sé rétt að félagið sé að styrkja þá sem eru annars með borgun frá vinnuveitanda á þingið. * Bent var á að setja þyrfti einhver takmörk á fjölda sem fengju styrk. * Einar Sv. leggur til breytingartillögu og að hægt verði að sækja um þennan styrk til stjórnar. * Einar biður Hálfdán að lesa upp tillöguna m.t.t. breytinga: "Lagt er til að ákveðinn fjöldi félagsmanna geti sótt um styrk til stjórnar Veðurfræðifélagsins fyrir þinggjöldum á norræna þinginu. Þeir sem þurfa sjálfir að standa straum af ferðinni og ráðstefnunni geta sótt um. Styrkirnir eru háðir því að viðkomandi flytji erindi á norræna þinginu eða á fræðaþingi félagsins þegar heim er komið." * Tillagan er samþykkt af aðalfundi * Ný vefsíða félagsins er kynnt af GNP (og HÁ). * Vefsíðan var smíðuð af HÁ og GNP á nokkrum kvöldstundum. * Spurt er um hýsingaraðila, kostnað og lén. 1984.is sem er íslenskt fyrirtæki hýsir vefsíðuna og hefur HÁ góða reynslu af því að skipta við þá. Kostnaður er um kr. 10.000,- á ári, þar af um kr. 1.300,-/ár vegna lénsins "vedur.org" sem er keypt erlendis og um 700 kr./mán vegna 1984.is. Hjá hýsingaraðila er full afritun, dns-þjónusta og möguleikar á frekari þjónustu, s.s. tölvupósti. * Síðan er enn í vinnslu og GNP tekur fram að við viljum gjarnan fá athugasemdir og tillögur að úrbótum. * HÁ tekur fram að ætlunin sé að gera aðgengileg þau erindi frá fræðaþingum sem félagsmenn vilja að verði aðgengileg. Vel er tekið í þetta og bæði Einar Sv. og Sveinn Br. vilja setja sín erindi þarna inn. * GNP segir frá veðurorðalistunum. * Almennt líst aðalfundi vel á vefsíðuna og fram kemur að hún sé nauðsynlegur samastaður fyrir okkur, þeas veðurfræðinga og annað áhugafólk um veðurfræði. Fundi slitið (líklega rétt um kl. 17)