Þorraþing og aðalfundur

Veðurfræðifélagið heldur þorraþing og aðalfund þriðjudaginn 17. febrúar 2015. Þingið verður haldið í matsal Veðurstofu Íslands að Bústaðavegi 7 og hefst kl. 13:30. Að loknum fyrirlestrum verður gengið til hefðbundinna aðalfundarstarfa.

Hér með er auglýst eftir óskum um erindi tengdi veðri og/eða veðurfari. Erindin verða að jafnaði um 12 mínútur auk 2 mínútna til spurninga. Senda þarf titil og stuttan útdrátt á: “vedurfraedifelagid hjá gmail.com”.

Veðurfræðifélagið og þing þess eru opin öllum sem hafa áhuga á veðri og veðurfari.